Download Print deze pagina

Echo DCS-310 Gebruikershandleiding pagina 400

Advertenties

2. Það ætti að taka lauslega um afturhandfangið með
hægri hendi.
Óhandvirki keðjuhemillinn stöðvar keðjusögina þannig
að bakslagið við enda beinistangarinnar virki
keðjuhemilinn. Til að ganga úr skugga um að óhandvirki
keðjuhemillinn virki rétt skal gera eftirfarandi:
1. Stöðvið vélina.
2. Haldið um fram- og afturhandföngin (takið lauslega
um þau) svo að setja megi beinistöngina í um 70 cm
hæð eins og sýnt er á mynd
3. Takið vinstri höndina mjúklega af framhandfanginu
og látið enda beinistangarinnar snerta við eða álíka
fyrir neðan svo högg komi á vélina. (* á þessari
stundu ætti að taka lauslega um afturhandfangið
með hægri hendi)
4. Höggið færist yfir á hemlastöngina sem virkjar
keðjuhemilinn.
11
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
Nef eða endi beinistangarinnar má ekki snerta hluti á
meðan vélin er í gangi til að koma í veg fyrir bakslag.
11.1 ALMENNT
Mynd 8-9.
Við allar kringumstæður má aðeins einn aðili nota
keðjusögina.
Stundum er erfitt að gæta að eigin öryggi svo ekki taka
ábyrgð á aðstoðarmanni sömuleiðis.
IS
Þegar þú hefur lært grunnatriðin í notkun sagarinnar, er
almenn skynsemi besta hjálpin.
Viðurkennd aðferð við að halda á söginni er að standa
til vinstri við sögina með vinstri hönd á framhandfanginu
svo hægt sé að ýta á gikkinn með hægri baugfingri.
Áður en tré er fellt skal skera nokkra minni boli eða
greinar. Lærið vandlega á stjórnbúnað og viðbrögð
sagarinnar.
Setjið vélina í gang og athugið hvort hún gangi
snurðulaust.
Það er ekki nauðsynlegt að ýta henni fast niður til að
saga. Ef keðjan hefur verið brýnd með réttum hætti ætti
að vera tiltölulega áreynslulaust að nota sögina.
Sumt efni getur haft neikvæð áhrif á umgjörð
keðjusagarinnar (til dæmis: sýra úr pálmatrjám, áburður,
o.s.frv.)
Til að koma í veg fyrir skemmdir á húsinu skal fjarlægja
allt uppsafnað sag í kring um tannhjólið og beinistöngina
og þvo með vatni.
11.2 FELLING Á TRÉ
Mynd 10-12.
HÆTTA
Íslenska
Tré, sem fellur, getur valdið alvarlegu tjóni á öllu sem
það lendir á - bíl, húsi, grindverki, rafmagnslínu eða
öðru tré. Það eru leiðir til að láta tré falla þar sem þú vilt,
svo fyrst skaltu ákveða hvar það er! Áður en þú sagar
skaltu hreinsa svæðið í kring um tréð. Þú þarft trausta
fótastöðu við vinnuna og þú ættir að geta notað sögina
án þess að lenda á fyrirstöðum.
1. Næst skaltu velja flóttaleið.
Þegar tréð byrjar að falla ættir þú að flýja í burtu
45 gráður frá fallstefnunni og að minnsta kosti
3 m frá trjábolnum ef tréð slæst til baka yfir
trjástubbinn.
2. Byrjið að saga á hliðinni sem tréð á að falla.
a) Skora: 1/3 í þvermál og 30˚ til 45˚ horn
b) Bakskurður: 2,5 til 5 cm hærri
c) Óskorinn hjöruskurður: 1/10 í þvermál
Gerið skoru um 1/3 inn í tréð. Staðsetning
skorunnar er mikilvæg því tréð mun reyna að
falla „inn í" skoruna.
Felliskurðurinn er gerður hliðinni sem liggur á
móti skorunni. Gerið felliskurðinn með því að
setja reknagla 2,5 cm til 5 cm fyrir ofan neðsta
hluta skorunnar og hættið að saga við um
1/10 úr þvermáli frá innri brún skorunnar til að
ósagaði hluti trésins virki sem hjör.
Reynið ekki að saga í gegn að skorunni
með felliskurðinum. Ósagaði búturinn á milli
skoruskurðarins og felliskurðarins mun virka sem
hjör þegar tréð fellur og beina því í viðeigandi
átt.
Þegar tréð byrjar að falla skal stöðva vélina,
setja hana niður á jörðu og yfirgefa staðinn með
hraði.
3. Felling á stóru tré.
Til að fella stór tré með þvermál sem er
stærra en tvöföld lengd stangarinnar skal byrja
skoruskurðina á einni hlið og draga sögina að
hliðinni á móti skorunni.
Hefjið bakskurðinn á einni hlið trésins með
reknaglann í og snúið söginni til að mynda
viðeigandi hjör á hliðinni.
Síðan skal taka sögina úr fyrir seinni skurðinn.
Setjið sögina mjög varlega í fyrsta skurðinn til að
valda ekki bakslagi.
Lokaskurðurinn er gerður með því að draga
sögina fram á við í skurðinum til að komast að
hjörinni.
11.3 GREINAHREINSUN
Mynd 13.
Notið sögina ekki yfir hæð bringu.
400
VARÚÐ

Advertenties

loading