Download Print deze pagina

Echo DCS-310 Gebruikershandleiding pagina 396

Advertenties

rafhlöður geta sýnt af sér óútreiknanlega hegðun
sem veldur bruna, sprengingu eða líkamstjóni.
Ekki hafa rafhlöðuna eða verkfærið óberskjaldað
fyrir eldi eða miklum hita. Varnarleysi gegn eldi
eða hitastigi yfir 130°C getur valdið sprengingu.
Fylgið öllum hleðsluleiðbeiningum og ekki hlaða
rafhlöðuna eða rafmagnsverkfærið utan þess
hitastigssviðs sem tilgreint er í leiðbeiningunum.
Röng hleðsla eða hleðsla við hitastig sem er utan
tilgreint svið, getur valdið skemmdum á rafhlöðunni
og aukið eldhættu.
2.6
ÞJÓNUSTA
Látið viðurkenndan viðgerðaraðila sjá um
þjónustu á rafmagnsverkfærinu og notið aðeins
varahluti af sömu gerð. Það tryggir öryggi
rafmagnsverkfærisins.
Gerið aldrei við skemmda rafhlöðu. Viðgerð á
rafhlöðu má aðeins framleiðandi framkvæma eða
viðurkenndur þjónustuaðili.
3
ÖRYGGISVIÐVARANIR
KEÐJUSAGAR
Haldið öllum líkamshlutum frá keðjusöginni
þegar keðjusögin er notuð. Áður en keðjusögin
er sett í gang skal tryggja að sagkeðjan snerti
enga hluti. Skortur á athygli í stutta stund á meðan
keðjusögin er í gangi getur valdið því að föt eða
líkamshlutar flækist í sagkeðjunni.
Haldið keðjusöginni ávallt með hægri hendi
á afturhandfanginu og vinstri hendi á
framhandfanginu. Áhætta á líkamstjóni eykst ef
IS
keðjusöginni er haldið með öfugri handstöðu og má
aldrei gera slíkt.
Haldið aðeins um einangruð handföng
keðjusagarinnar því sagkeðjan kann að komast
í snertingu við dulda víra. Ef sagkeðja snertir
„lifandi" vír geta málmhlutar keðjusagarinnar „leitt
rafmagn" og notandinn fengið raflost.
Notið augnhlífar. Mælt er með frekari
hlífðarbúnaði fyrir eyru, höfuð, hendur, fótleggi
og fætur. Fullnægjandi hlífðarbúnaður dregur úr
líkamstjóni af völdum aðskotahluta á lofti eða
óviljandi snertingar á sagkeðjunni.
Notið ekki keðjusögina í tré, í stiga, á þaktoppi
eða óstöðugri undirstöðu. Ef keðjusögin er notuð
þannig getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns.
Tryggið ávallt viðeigandi fótastöðu og notið
aðeins keðjusögina á föstu, traustu og sléttu
yfirborði. Ef notandinn rennur til eða er á óstöðugu
yfirborði getur það leitt til missis á jafnvægi eða
stjórn á keðjusöginni.
Þegar grein undir spennu er söguð skal hafa
í huga að hún getur skotist til baka. Þegar
losnar um spennu í viðartrefjunum getur grein undir
spennu slegist í notandann og/eða keðjusögina svo
notandinn missi stjórn á henni.
Íslenska
Sýnið ýtrustu varúð við klippingu á kjarri og
ungtrjám. Grannt efnið getur fests í sagkeðjunni og
slegist í átt að þér eða komið þér úr jafnvægi.
Haldið á keðjusöginni með framhandfanginu og
frá líkamanum þegar labbað er um með hana
og gætið þess að slökkt sé á henni. Þegar
keðjusögin er flutt eða geymd verður alltaf að
setja beinistangarhlífina á. Viðeigandi meðhöndlun
á keðjusöginni dregur úr líkum þess að snerta óvart
sagkeðjuna.
Fylgið fyrirmælum um smurningu,
keðjustrekkingu og skipti um stöng og keðju.
Keðja sem hefur ekki verið strekkt eða smurð með
réttum hætti getur annaðhvort slitnað eða aukið líkur
á bakslagi.
Aðeins til að saga við. Notið ekki keðjusögina
í öðrum en ætluðum tilgangi. Til dæmis: notið
keðjusögina ekki til að saga málm, plast,
múrverk eða byggingarefni sem ekki er úr við.
Notkun á keðjusöginni fyrir önnur verk en hún er
ætluð fyrir, getur leitt til hættulegra aðstæðna.
Reynið ekki að fella tré fyrr en öll hætta liggur
fyrir og hvernig koma megi í veg fyrir þær.
Notandinn eða viðstaddir geta orðið fyrir alvarlegum
meiðslum þegar tré er fellt.
Fylgið öllum fyrirmælum við hreinsun á flæktu
efni, geymslu eða viðgerðir á keðjusöginni.
Gangið úr skugga um að slökkt sé á henni og
að rafhlaðan hafi verið tekin úr. Ef keðjusögin
fer óvænt í gang við hreinsun á flæktu efni eða
viðgerðir getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns.
4
KOMIÐ Í VEG FYRIR BAKSLAG
Bakslög geta átt sér stað þegar nef eða oddur
beinistangarinnar snertir hlut eða þegar viðurinn
þrengist og klemmir sagkeðjuna í sárinu.
Ef oddurinn lendir á hlutum getur það stundum valdið
skyndilegu bakslagi, rykkt beinistönginni upp og aftur á
bak í átt að notandanum.
Ef sagkeðjan klemmist við efsta hluta beinistangarinnar
getur það ýtt beinistönginni skyndilega afturábak og í átt
að notandanum.
Þú getur misst stjórn á söginni í báðum þessum
tilvikum og valdið alvarlegu líkamstjóni. Treystið ekki
eingöngu á innbyggðan öryggisbúnað keðjusagarinnar.
Sem notandi keðjusagarinnar ættir þú að grípa til
víðtækra ráðstafana til að koma í veg fyrir slys eða
meiðsli við vinnu þína.
Bakslag á sér stað við misnotkun og/eða ranga notkun
eða aðstæður og er hægt að koma í veg fyrir það með
viðeigandi varúðarráðstöfunum eins og hér segir:
Viðhaldið góðu gripi með þumalfingur og
fingur um handföng keðjusagarinnar, með báðar
hendur á söginni og líkams- og armstöðu þannig
að þú standist alla bakslagskrafta.
396

Advertenties

loading