Download Inhoudsopgave Inhoud Print deze pagina

ResMed Astral Gebruikershandleiding pagina 119

Reistas
Verberg thumbnails Zie ook voor Astral:
Inhoudsopgave

Advertenties

Ef varan bilar við eðlilega notkun, mun ResMed gera við eða endurnýja,
að eigin vali, gölluðu vöruna eða einhverjar einingar hennar.
Þessi takmarkaða ábyrgð nær ekki yfir: a) skemmdir af völdum
óviðeigandi notkunar, misnotkun, breytingar eða lagfæringar á vörunni;
b) viðgerðir framkvæmdar af þjónustuaðila sem ResMed hefur ekki veitt
sérstaka heimild til að framkvæma slíkar viðgerðir; c) skemmdir eða
mengun frá sígarettum, pípum, vindlum eða öðrum reyk; d) skemmdir
af völdum vatns sem hellt er á eða í vöruna.
Sala eða endursala vörunnar utan þess svæðis þar sem varan var
upphafleg keypt ógildir ábyrgðina.
Ábyrgðarkröfur á galllaða vöru verða að koma frá upphaflegum
kaupanda þar sem varan var keypt.
Þessi ábyrgð kemur í staðinn fyrir alla beina eða óbeina ábyrgð, ásamt
allri óbeinni ábyrgð um söluhæfi eða hæfis til notkunar í tilteknum
tilgangi. Sum svæði eða ríki heimila ekki takmarkanir á tímamörkum
ábyrgðar, svo það kann að vera að ofangreind takmörkun eigi ekki við
um þig.
ResMed ber ekki ábyrgð á hvers kyns tilfallandi eða afleiddum
skemmdum sem ætlað er að séu afleiðing af sölu, uppsetningu eða
notkun ResMed-vara. Sum svæði eða ríki heimila ekki útilokun eða
takmörkun tilfallandi eða afleiddra skemmda, svo það kann að vera að
ofangreind takmörkun eigi ekki við um þig.
Þessi ábyrgð veitir þér tiltekin lagaleg réttindi og þú getur einnig haft
önnur réttindi sem eru breytileg frá einu svæði til annars. Fyrir nánari
upplýsingar um ábyrgðarréttindi þín skaltu hafa samband við söluaðila
ResMed á staðnum eða skrifstofu ResMed.
Upplýsingar um ábyrgð fyrir viðskiptavini í Ástralíu
Um vörur okkar gildir ábyrgð sem ekki er hægt að útiloka samkvæmt
áströlskum neytendalögum. Þú átt rétt á skiptivöru eða endurgreiðslu
vegna meiriháttar bilunar og bætur vegna annars taps eða tjóns sem
hefði mátt ætla að hægt væri að sjá fyrir. Þú átt einnig rétt á að gert sé
við vörur eða skipt um þær ef þær eru ekki af ástættanlegum gæðum
og bilunin flokkast ekki sem alvarleg bilun.
Auk réttinda þinna og úrræða samkvæmt áströlskum neytendalögum
(og öllum öðrum gildandi lögum) ábyrgist ResMed Pty Ltd ABN 30 003
765 142 með aðsetur á 1 Elizabeth Macarthur Drive, Bella Vista NSW
2153 (ResMed) að ResMed-varan verði gallalaus að því er varðar efni og
framleiðslu frá kaupdegi fyrir neðangreint tímabil:
Vara
• Grímukerfi (ásamt grímuhólfi, púða, höfuðfestingum
og barka) – að undanskildum einnota tækjum
• Aukabúnaður – að undanskildum einnota tækjum
• Sveigjanlegir púlsmælar fyrir fingur
• Vatnstankar fyrir rakatæki (ekki endurnotanlegir)
• Rafhlöður fyrir innra og ytra rafhlöðukerfi ResMed
• Fingurmælir fyrir súrefnismettun
• Svefnöndunartæki (CPAP) og gagnaeiningar
• Súrefnismælir og svefnöndunartæki og millistykki fyrir
tvístiga svefnöndunartæki
• Rakatæki og vatnstankar fyrir rakatæki
(endurnotanlegir)
• Skammtastillingartæki
Ábyrgðartímabil
90 dagar
6 mánuðir
1 ár
Íslenska 115

Advertenties

Inhoudsopgave
loading

Deze handleiding is ook geschikt voor:

Astral slimfit

Inhoudsopgave