Uppsetningarleiðbeiningar
Kerfi 0010: 4 pípu kerfi með 2 porta lokum á framrásarlögnum og sjálfvirkri
skiptingu yfir í kælingu sem stýrist af viðmiðunarhitastilli herbergis.
Valkostur: Daggarmarksskynjari (ráðlagður), hringrásardæla og kallmerki eftir hitun og Global
standby.
Kerfislýsing
4 pípu kerfi með 2 porta lokum á innstreymislögnum og sjálfvirkri skiptingu yfir í kælingu sem stýrist af
viðmiðunarhitastilli herbergis.
Kerfið virkjar kælingu gegnum 2 porta loka með vaxmótora á framrás og retúrhlið með því að virkja sams-
varandi útganga (M1 - M4). Athugaðu: Í þessu kerfi eru útgangar 1, 2, 3 og 4 á Danfoss Icon™ móðurstöðinni
ætlaðir fyrir kerfið sjálft og ekki hægt úthluta þeim hitastillum.
Við kælingu er alltaf mælt með að setja inn daggarmarksskynjara í kerfið til að hindra rakaskemmdir á
gólfi og innréttingum í tilfellum þegar rakastig fer upp fyrir daggarmark. Uppfylla þarf fjögur skilyrði til að
leyfilegt sé að kæla herbergi:
•
Viðmiðunarhitastig herbergis verður að fara upp fyrir stillihitastig herbergis + kælitregðu.
•
Ekkert herbergi kallaði eftir hitun innan hlutleysistíma.
•
Daggarmarksskynjari má hvorki vera virkur né þéttihætta til staðar.
•
Gera verður hitastilli kleift að kæla (sjálfvalið = gert kleift (enabled)).
Global standby er spennulaus inngangur sem nota má til að fjarstýra kerfinu t.d. gegnum GSM-einingu frá
öðrum framleiðanda. Þegar Global standby-inngangur er virkur eru öll herbergi stillt á 15 gráður á Celcius.
Stillingar
„SET 1" = Stillir kælitregðu til að skipta yfir [+2 til +4°K].
„SET 2" = Stillir hlutleysistíma sem líða verður án virkrar hitunar eða kælingar áður en hægt er að virkja
skiptingu [3-6 klst].
APPLICATION
SETTINGS
182 | © Danfoss | FEC | 2018.12
Viðbótareining fyrir Danfoss Icon™ móðurstöð
OK
OK
OK
OK
OK
OK
VIMDE20F / 088N2100
OK
OK