Download Inhoudsopgave Inhoud Print deze pagina
Inhoudsopgave

Advertenties

Íslenska
Yfirlit
GS Yuasa GYT117 rafleiðnimælir veitir einfalda leið til að kanna
ástand VRLA rafhlaðna (e. Venve Regulated Lead Acid) á bilinu
0,5Ah til 25Ah.
Tæknilýsing
Mælisvið spennumælis: +6,0 til +19,99 Vdc
Spennunákvæmni: +/–50 mV á mælisviðinu
Notkunarhitastig: -18 til 50 °C (0 til 120 °F)
Takmarkanir spennumælinga:
12V hámark = 13,80V
12V lágmark = 12,00V
6V hámark = 6,90V
6V lágmark = 6,00V
Leiðnibil (e. Siemens range): 20 til 1200S
VARÚÐ: Ef reynt er að nota GS Yuasa GYT117 út fyrir tilgreint
notkunarsvið þess getur það valdið varanlegum skemmdum á
mælitækinu.
Varúðarráðstafanir
• Fylgdu alltaf öryggisstöðlum vinnustaðar þegar að þú sinnir
viðhaldi á rafhlöðu.
• Sýndu ávallt mikla aðgát þegar unnið er með rafhlöður.
• Nota skal öryggisgleraugu og önnur öryggistæki. Ef það er ekki
gert getur það leitt til líkamstjóns.
• Til að forðast raflost skal fjarlægja persónulega málmhluti eins
og hringa, armbönd, hálsmen og úr.
• Til að ákvarða hvort hægt sé að prófa rafhlöðuna á öruggan
hátt skaltu skoða rafhlöðuna með tilliti til þess hvort kassinn
hafi aflagast, lekið, brotnað og litast um eftir öðrum sýnilegum
merkjum um galla eða vandamál.
Leiðni og spennumælingar
Leiðni er vísbending um gæði rafhlöðu og mat á afkastagetu
hennar. GS Yuasa GYT117 mælir og sýnir spennu (e. Vdc) og leiðni
fyrir hvaða 6 eða 12 volta rafhlöðu sem er með afhleðslugetu á
bilinu 0,5 til 25 amperstundir (e. Ah). Jafnspenna er mælikvarði á
rafgetu rafhlöðunnar.
Leiðni er hlutfallslegur mælikvarði á getu rafhlöðu til að uppfylla
málrýmd sína. GS Yuasa GYT117 sýnir leiðnigildi í Siemens (e. S).
Almennt séð er mikil hlutfallsleg leiðni vísbending um gæði
rafhlöðu og lág mæling gefur til kynna rafhlöðu í hrakástandi.
74

Advertenties

Inhoudsopgave
loading

Inhoudsopgave