Straumspilun hljóðs
Þú getur notað Sound Assist til að streyma hljóði frá hvaða Bluetooth-tæki
sem er í heyrnartækið þitt. Þú þarft aðeins að virkja straumspilun á tengda
tækinu.
Spila/gera hlé Ýttu stutt á þrýstihnappinn (1.4)
Næsta lag
Ýttu tvisvar sinnum á þrýstihnappinn (1.4)
Fyrra lag
Ýttu þrisvar sinnum á þrýstihnappinn (1.4)
ATHUGIÐ
Aðeins er hægt að nota handfrjáls símtöl og hljóðstreymi úr tengdu Bluet-
ooth-tæki í Bluetooth-stillingu.
Straumspilun með T-spólu
Þegar Sound Assist-tækið er í T-spólu-stillingu streymir það hljóði frá
þeirri T-spólu sem er nálægust. Þannig geta notendur heyrnartækja sem
ekki eru með T-spólu einnig tengst við T-spólu-kerfi.
Þegar hljóði er streymt frá T-spólu er mikilvægt að snúa tækinu þannig
að afl-/stillingahnappurinn (1.6) vísi upp. Mælt er með því að bera Sound
Assist-tækið í hálslykkjunni.
Til að gera hlé á streyminu er ýtt stutt á þrýstihnappinn (1.4). Ýttu aftur á
þrýstihnappinn til að halda áfram að streyma.
153