Download Inhoudsopgave Inhoud Print deze pagina
Inhoudsopgave

Advertenties

Beschikbare talen
  • NL

Beschikbare talen

  • DUTCH, pagina 7
Íslenska
Eiginleikar
– Hleður Qi-samtengjanleg tæki þráðlaust.
– Stenst Qi v1,2 forskrift.
– Hleður 1 tæki í gegnum USB-tenginu.
– Vaktar hitastig og orku í öryggisskyni.
– LED stöðuvísir.
Eiginleikar
– Tengdu hleðslusnúruna við straumbreytinn og
settu í samband við vegginnstungu.
– Fyrir þráðlausa hleðslu er tækið lagt ofan
á plúsmerkið (+) á hleðslutækinu. Tækið
verður að liggja beint ofan á plúsmerkinu (+)
á hleðslutækinu til að hleðslan haldist virk.
Athugaðu að á sumum tækjum gæti þurft að
virkja þráðlausa hleðslu í stillingum.
– Ef rafhlaðan er alveg tóm, gæti tekið nokkar
mínútur fyrir hleðslu að hefjast. Það er eðlilegt.
Þegar rafhlöðutáknið birtist á símanum, hefur
hleðsla hafist.
– Ef þú vilt hlaða með USB, tengdu USB-snúruna við
USB-tengið. (Sjá mynd 1).
LED vísir (sjá myndir):
2. Kveikt: LED ljósið logar í 3 sekúndur.
3. Hleður: LED ljósið logar.
4. Hleðslu lokið: LED ljósið er slökkt.
5. Villa: LED ljósið blikkar.
Gott að vita
– Tæki gætu hitnað á meðan hleðslu stendur. Þetta
er eðlilegt og þau kólna aftur smám saman þegar
þau hafa náð fullri hleðslu.
– Hleðslutími getur verið breytilegur miðað
við rúmtak rafhlöðunnar, stig hleðslu, aldur
rafhlöðunnar og hitastig umhverfis.
– Geymsluhitastig hleðslutækis: -20°C til 25°C.
– Notkunarhitastig hleðslutækis: 0°C til 40°C.
Taktu hleðslutækið úr sambandi áður en það er
þrifið og þegar það er ekki í notkun.
Til að þrífa hleðslutækið, strjúkið af með rökum
klút. Sökkvið hleðslutækinu aldrei ofan í vatn.
Ráðlagðar varúðarráðstafanir og tæknilegar
upplýsingar.
Sjá bakhlið hleðslutækis.
Geymið leiðbeiningarnar fyrir frekari notkun.
VIÐVÖRUN:
Aðeins hlaða tæki sem eru Qi-samtengjanleg.
Innstungan verður að vera nálægt tækinu og
auðvelt að ná til hennar.
Notaðu aðeins í þurru umhverfi.
Gættu þess að börn leiki sér ekki með vöruna.
Ef snúran er skemmd ætti að farga tækinu.
Vöruþjónustu viðhald
Ekki gera tilraun til að gera við þessa vöru upp á
eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir lokin
gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum hættum.
Tæknilegar upplýsingar
Tegund: A1502 HEKTAR
Inntak: 19.0 V, 0.53 A
Aðeins til notkunar innandyra
Vinnslutíðni: 110 - 205 KHz
Útgangsafl: -2 dBµA/m við 10 m
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilisfang:
Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN"
'Qi' táknið er vörumerki Wireless Power Consortium
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir
þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu
heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu
eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir
sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með
venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga
úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða
nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg
neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð
nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
9

Advertenties

Inhoudsopgave
loading

Inhoudsopgave