Download Print deze pagina

cozze 90300 Gebruiksaanwijzing pagina 12

Advertenties

Beschikbare talen
  • NL

Beschikbare talen

  • DUTCH, pagina 14
IS - NOTENDAHANDBÓK
Lestu notkunarleiðbeiningarnar áður en þú notar borðið, geymdu þær til síðari nota, kynntu
þér öryggisleiðbeiningarnar og fylgdu þeim. Tryggðu að uppsetning, samsetning og viðhald
á borðinu séu í samræmi við þessar leiðbeiningar. Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt
getur það leitt til alvarlegra líkamsmeiðsla og/eða eignatjóns. Ef spurningar vakna um
samsetningu eða notkun borðsins skaltu hafa samband við söluaðilann, framleiðandann eða
fulltrúann.
VARÚÐ:
Röng notkun getur verið hættuleg.
Lestu samsetningarleiðbeiningarnar vandlega. Setja verður borðið saman samkvæmt
þessum samsetningarleiðbeiningum.
Verja skal borðið fyrir drjúpandi vatni o.s.frv.
Engin eldfim efni mega vera innan 1 metra frá bakhlið eða hliðum borðsins þegar til dæmis
pítsuofn er notaður á því.
Borðið verður að vera á sléttu yfirborði við eldun.
NOTNKUN OG VIÐHALD
Ekki færa borðið við eldun. Halda verður borðinu fjarri eldfimum efnum við eldun.
Hreinsaðu borðið reglulega, helst eftir hverja grillveislu. Borðið skal hreinsað að minnsta
kosti einu sinni á ári. Plastyfirborð: þvoið með heitu sápuvatni og þurrkið. Ekki nota
sítrónusýru, svarfandi hreinsiefni, fituleysandi efni eða hreinsiþykkni á plasthluta þar sem
það getur skemmt þá og/eða leitt til bilana.
Yfirborð úr ryðfríu stáli: hreinsið borðið eftir hverja notkun með mildu hreinsiefni og sápuvatni
og þurrkið með mjúkum klút.Nota gæti þurft svamp til að hreinsa fituleifar. Notið mýkri hluta
svampsins til að forðast að valda skemmdum.
FÖRGUN
Ekki má farga borðinu með heimilissorpi. Fargið borðinu á endurvinnslustöð. Það verndar
auðlindir og umhverfið.
Frekari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.
12

Advertenties

loading